Krílasálmar eru tónlistarnámskeið fyrir börn á fyrsta ári (3-12 mánaða) er haldið í Lindakirkju einu sinni í viku í 45 mínútur í senn í samtals fjórar vikur. Námskeiðin fara fram í kirkjunni á miðvikudögum frá kl. 12 til 12:45.
Tónlistarkonurnar Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Hjördís Anna Matthíasdóttir eru kennarar námskeiðisins.
Takmarkaður fjöldi er á hvert námskeið.
Upplýsingar um krílasálma má fá hjá Áslaugu Helgu í gegnum netfangið aslaughh@gmail.com.
Nánar um Krílasálma og upphaf þeirra:
Krílasálmar eru söngur –leikur og tónlist, dásamleg tónlistarstund fyrir litlu krílin og foreldra þeirra. Á námskeiðinu er unnið með skynjun, upplifun og tónlistararfinn.
Fjöldi þátttakenda takmarkast við 12 börn í hvert skipti en uppbókað hefur verið á öll námskeið í Lindakirkju.
Krílasálmar hófu göngu sína í Fella- og Hólakirkju árið 2007. Námskeiðið á rætur sínar að rekja til Danmerkur og er nafnið þýðing á danska orðinu Babysalmesang. Á námskeiðunum læra foreldrar leiðir til að nota söng og tónlist í daglegu uppeldi og umönnun barna sinna. Sungnir eru sálmar og lög kirkjunnar, þekkt barnalög og kvæði, leikið og dansað, hlustað og notið samverunnar í notalegu umhverfi kirkjunnar.
Starfsmenn í krílasálmum
Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Djákni / Kórstjóri barna- og unglingagospelkóra
aslaughh@gmail.com
Hjördís Anna Matthíasdóttir
Aðstoðarkórstjóri barna- og unglingagospelkóra / Glærustjórn