Fermingarfræðsla 2024-2025

Upphaf fermingarfræðslu

Fræðsludagar

Fermingarstarfið hefst með skemmtilegum fræðsludögum vikuna áður en skólar hefjast, eða 19. – 22. ágúst 2024.

Kóraskóli mætir mánudaginn 19. ágúst og þriðjudaginn 20. ágúst kl. 9-12.

Vatnsendaskóli mætir mánudaginn 19. ágúst og þriðjudaginn 20. ágúst kl. 13-16.

Salaskóli mætir miðvikudaginn 21. ágúst og fimmtudaginn 22. ágúst kl. 9-12.

Lindaskóli mætir miðvikudaginn 21. ágúst og fimmtudaginn 22. ágúst kl. 13-16.

Messa sunnudaginn 25. ágúst 2024

Sunnudaginn 25. ágúst kl. 20:00 bjóðum við fermingarbörn og fjölskyldur þeirra sérstaklega velkomin í skemmtilega messu sem markar upphaf vetrarinns. Fimm af messum vetrarins verða sérstaklega ætlaðar fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra.

Fermingarfræðslutímar 2024-2025

Hver skóli mætir aðra hvora viku. Ef börnin eiga ekki heimangengt á þeim tímum sem þeirra skóli mætir er þeim frjálst að mæta í fræðslu með öðrum skólum.

Hver skóli mætir annan hvern þriðjudag í kennslustundir sem taka 40 mínútur. Fyrstu tímarnir verða sem hér segir:

Þriðjudag 17. september:
Salaskóli mætir kl. 14.30
Kóraskóli mætir kl. 15.30

Þriðjudag 24. september:
Lindaskóli mætir kl. 14.50
Vatnsendaskóli mætir kl. 15.30

Heildardagskrá fermingarfræðslu 2024-2025

Tenglar

Ferðalag í Vatnaskóg

Einn af hápunktum vetrarins er fermingarnámskeið í Vatnaskógi. Mörgum hefur þótt það meiriháttar upplifun, enda hefur staðurinn upp á svo ótalmargt að bjóða. Þar sem gist verður í tvær nætur er gjaldið ögn hærra en hjá öðrum söfnuðum. Fullt verð á námskeiðinu er 26.100 kr. en fyrir börn í þjóðkirkju verður ferðin greidd niður að hluta.

Upplýsingar varðandi ferðina í Vatnaskóg; tímasetningar, það sem þarf að taka með og annað:

Börn úr Vatnsenda- og Kóraskóla fara eftir skóla, þriðjudaginn 8. október til fimmtudagsins 10. október 2024.

Börn úr Sala- og Lindaskóla fara eftir skóla, þriðjudaginn 15. október til fimmtudagsins 17. október 2024.

Lagt er af stað kl. 16 frá Lindakirkju og komum heim um kl. 11:30 til 12.

ATHUGIÐ að biðja um leyfi fyrir börnin í skólanum vegna ferðarinnar.

Þær tvær vikur sem fermingarbörnin fara í Vatnaskóg verður ekki fermingarfræðsla í Lindakirkju á meðan.

Prestarnir fara öll þrjú í báðar ferðirnar. Við viljum að öllum líði vel og til að sem best sé hægt að tryggja það biðjum við ykkur að láta okkur vita af vandamálum tengdum kvíða, vinatengslum eða heilsufari barnsins. Þá eru foreldrar/forráðamenn beðnir að senda tölvupóst á lindakirkja@lindakirkja.is ef gæta þarf sérstaklega að fæðuóþoli, lyfjagjöf og þ.h.

Tekið skal fram að ferðin er talsvert mikið niðurgreidd af Lindasókn og prófastdæminu fyrir þau fermingarbörn sem skráð eru í Þjóðkirkjuna. Sé barnið ekki skráð í Þjóðkirkjuna þarf að greiða fullt verð. (ef þið eruð ekki viss um trúfélagsskráningu getur hver og einn skoðað trúfélagsskráningu sína og barna sinna, með rafrænum skilríkum inná vefsíðunni island.is)

Allt er innifalið í verðinu fyrir ferðina. Rútuferðir, matur allan tímann, fræðsla, kvöldvökur og allt það sem Vatnaskógur hefur upp á að bjóða.

Skráning í ferðina fer fram hér

Öllum á að vera kleift að koma með í ferðina. Sé erfitt að greiða gjaldið í einu lagi, eða ef illa stendur á biðjum við ykkur senda tölvupóst á: lindakirkja@lindakirkja.is

Hér fyrir neðan eru tillögur að nauðsynlegum farangri:

  • Svefnpoki eða sæng, lak og koddi.
  • Eitt sett af fötum til skiptanna (nærföt, sokkar, buxur, bolur, peysa).
  • Hlý peysa vettlingar, trefill og húfa.
  • Vind- og vatnsheldur jakki eða úlpa, stígvél, hlýir sokkar og inniskór.
  • Íþróttafatnaður og inniíþróttaskór.
  • Tannbursti, tannkrem og handklæði.
  • ATH ekki borgar sig að taka með verðmæt tæki. Þau gætu skemmst og Vatnaskógur tekur enga ábyrgð á því.
  • Farsímar eru ekki leyfðir í ferðinni. Í Vatnaskógi er afskaplega takmarkað símasamband og því lítil not fyrir símann. Eins og reynslan hefur sýnt þá hafa símarnir verið afskaplega truflandi í ferðunum, við fylgjum í fótspor kirkna sem bönnuðu farsíma í fyrsta skipti í fyrra og ferðalagið varð fyrir vikið mun skemmtilegra fyrir alla. Ef börnin þurfa að hafa samband heim er hægt að gera það hjá okkur og eins geta foreldrar haft samband ef þörf er á.

Orkudrykkir eru stranglega bannaðir.

  • Umgengnisreglur í Vatnaskógi Allir eiga að njóta dvalarinnar Við leggjum okkur fram um að vera góðir félagar og sýnum tillitssemi í samskiptum. Þeir sem vísvitandi reyna að eyðileggja dvölina fyrir öðrum eru sendir heim. Allir þátttakendur taka þátt í öllum dagskrárliðum námskeiðsins nema annað sé tekið fram. Allir ganga vel um. Við göngum vel um húsnæði og eigur Vatnaskógar. Sá sem vísvitandi veldur tjóni þarf að bæta það. Óheimilt er að fara inn og út um glugga. Bátar eru lánaðir ef veður leyfir og um þá gilda reglur sem kynntar eru á staðnum.

Gullna reglan “Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra” Matt 7:12.

Varðandi þjálfun og hæfni starfsmanna í Vatnaskógi. Prestarnir þrír fara öll í ferðina í Vatnaskóg og gæta þess að öllum líði vel og sjá um fræðslustundir um Biblíuna, kristna trúarhefð og bænina. Þá hefur Vatnaskógur á að skipa þaulreyndu starfsfólki sem leiðir námskeiðið, bíður uppá fjölbreytta dagskrá í frítímanum, bátaferðir, íþróttahúsi, leiki, gönguferðir um skóginn, kvöldvökur og fleira. Maturinn í Vatnaskógi er hollur og næringarríkur og bakað á staðnum með kaffinu.
Allir starfsmenn í starfi KFUM og KFUK með börnum og ungmennum þurfa að skila inn heimild til félagsins þess efnis að hægt sé að leita upplýsinga um viðkomandi í Sakaskrá ríkisins. Enginn starfar í Vatnaskógi nema að hafa tekið námskeiðið Verndum þau þar sem fjallað er um ofbeldi og vanrækslu gagnvart börnum og ungmennum og leiðir til að bregðast við slíku.
Öllum starfsmönnum KFUM og KFUK stendur auk þess til boða mikill fjöldi af námskeiðum fyrir leiðtoga í barna- og unglingastarfi sem eru ýmist skipulögð af félaginu sjálfu eða í samstarfi við aðra aðila á sviði barna- og ungmennastarfs. Þá gefst leiðtogum reglulega tækifæri til að sækja námskeið á erlendri grund.
Félagið hefur að auki innleitt siðareglur fyrir alla sjálfboðaliða og starfsmenn í samráði við Æskulýðsvettvanginn. Þá hefur félagið sett sér forvarnastefnu sem er fylgt eftir með kerfisbundnum hætti. Í samvinnu við Æskulýðsvettvanginn hefur félagið einnig unnið að stefnumótun í eineltisvörnum.
Dagskráin í Vatnaskógi:
Dagur I  
16:00 Brottför frá Lindakirkju
17:00 Komið í Vatnaskóg – upphafstund, frjáls tími
18.00 Kvöldverður, íþróttahúsið hópleikur, frjáls tími
21:30 Kvöldvaka, kvöldhressing, kyrrðarstund, háttatími og svefnró
Dagur II
9:00 Vakið
9:30  Morgunverður
10:00 Morgunstund – fræðsla allir, frjáls tími – dagskrá
12:00 Hádegisverður,  fræðsla hópar  I og II, frjáls tími – dagskrá
15:00 Kaffi Amazing Race – frjáls tími, fræðsla III og IV
18.30 Kvöldverður, leikur, frjáls tími – íþróttahúsið opið
21:15 Kvöldvaka, kvöldhressing, kyrrðarstund, háttatími og svefnró
Dagur III
9:00 Vakið
9:30  Morgunverður, pökkun og frágangur
Helgistund í Hallgrímskirkju Saurbæ
Heimför komið í Lindakirkju milli 11:30 -12:00

Skráning í fermingar og fermingarfræðslu

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til þess að skrá í fermingarfræðslu. Við skráningu er greitt skráningargjald og einnig valin fermingardagur. Athugið að námsgögn eru innifalin í skráningargjaldi.

Fermingardagar vorið 2025

Kynningarfundur um fermingarfræðsluna í Lindakirkju veturinn 2024-2025 verður haldinn í Lindakirkju í maí 2024. Að fundi loknum verður opnað fyrir skráningu í fermingarfræðslu næsta vetrar á heimasíðunni