Við tökum þátt í átaki Soroptimistaklúbbs Kópavogs og lýsum upp turn Lindakirkju meðan ákalli framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna um roðagylltan alheim stendur.
Átakið hefst 25. nóvember og lýkur 10. desember á Mannréttindadegi SÞ og varir því í 16 daga.
Átakið beinist að efla vitundarvakningu gegn kynbundnu ofbeldi og rjúfa þögnina gegn ofbeldinu. Í ár beinist kastljósið að stafrænu ofbeldi.