Þriðjudaginn 3. september hefst starfið í UD KAKTUS sem er unglingastarf Lindakirkju í samstarfi við KFUM og KFUK á Íslandi. Við hittumst á þriðjudagskvöldum kl. 20:00-21:30 og bjóðum upp á fjölbreytta dagskrá í allan vetur.

Starfið er fyrir unglinga í 8. – 10. bekk og það kostar ekkert að mæta, að ferðum undanskyldum.

Við gerum ráð fyrir að fara á mót í Vatnaskógi í byrjun nóvember. Nánari upplýsingar og verð koma síðar. Þátttaka á mótið er ætluð þeim sem sækja UD starfið.

Hlökkum til að sjá þig í UD KAKTUS!