Um er að ræða 50% prósent starfshlutfall með sveigjanlegum vinnutíma, unnið er bæði virka daga og um helgar eftir þörfum. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og annasamt.
Starfssvið:
- Dagleg umsjón með kirkju og safnaðarheimili
- Umsjón með búnaði
- Þjónusta við helgihald
- Aðstoð í sal við erfidrykkjur og annað.
- Þrif á húsnæði
- Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við sóknarprest og rekstrarstjóra
Hæfniskröfur:
- Þjónustulund, snyrtimennska og sveigjanleiki
- Færni í mannlegum samskiptum
- Þekking og áhugi á starfi og hlutverki kirkjunnar
- Gott vald á íslensku í rituðu og mæltu máli
Starfið hentar öllum kynjum.
Rík áhersla er lögð á trúmennsku í starfi og metnað til þess að takast á við mismunandi verkefni.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2022 nk. Umsóknir sendist rafrænt á netfangið: lindakirkja@lindakirkja.is
Eða á Alfreð: https://alfred.is/starf/kirkjuvoerdur-1
Umsækjendur sendi inn ferilsskrá þar sem fram koma: persónulegar upplýsingar, menntun, starfsferill, meðmælendur og annað sem umsækjendur vilja að komi fram.
Athuga skal að leitast verður eftir samþykki umsækjenda til að afla sakavottorðs.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu kirkjunnar af rekstrarstjóra, sími 544 4477 virka daga á milli 10:00-14:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið lindakirkja@lindakirkja.is