Næsta námskeið 10. febrúar – 17. mars 2017
Krílasálmar eru tónlistarnámskeið fyrir börn á fyrsta ári (3-12 mánaða) er haldið í Lindakirkju einu sinni í viku í 45 mínútur í senn í samtals sex vikur. Námskeiðin fara fram í kirkjunni á föstudögum milli 10:30 -11:15. Umsjónarmenn eru Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Berglind Björgúlfsdóttir. Næsta Krílasálmanámskeið í Lindakirkju verður 10. febrúar til 17. mars (6 vikur). Kennt verður á föstudögum frá 10:30-11:45 ATH – Takmarkaður fjöldi er á hvert námskeið. Skráning fer fram í gegnum netfangið aslaughh@gmail.com Námskeiðsgjald er kr. 5000.-
Nánar um Krílasálma og upphaf þeirra:
Krílasálmar eru söngur –leikur og tónlist, dásamleg tónlistarstund fyrir litlu krílin og foreldra þeirra. Á námskeiðinu er unnið með skynjun, upplifun og tónlistararfinn. Leiðbeinendur í Lindakirkju eru tónlistarkennarnir: Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Berglind Björgúlfsdóttir. Næsta Krílasálmanámskeið í Lindakirkju verður 10. febrúar til 17. mars. Kennt er á föstudögum frá 10:30-11:45. Fjöldi þátttakenda takmarkast við 12 börn í hvert skipti en uppbókað hefur verið á öll námskeið í Lindakirkju.
Krílasálmar hófu göngu sína í Fella- og Hólakirkju árið 2007. Námskeiðið á rætur sínar að rekja til Danmerkur og er nafnið þýðing á danska orðinu Babysalmesang. Á námskeiðunum læra foreldrar leiðir til að nota söng og tónlist í daglegu uppeldi og umönnun barna sinna. Sungnir eru sálmar og lög kirkjunnar, þekkt barnalög og kvæði, leikið og dansað, hlustað og notið samverunnar í notalegu umhverfi kirkjunnar.