Alfa námskeið í Lindakirkju hefst með kynningarkvöldi á morgun, miðvikudaginn 25. september kl. 18:00-20:00. Boðið verður uppá dýrindis kvöldverð og biðjum við fólk að senda á lindakirkja@lindakirkja.is
til að hægt sé að gera ráðstafanir með matinn varðandi óþol eða annað. Námskeiðið stendur svo í sjö miðvikudagskvöld frá kl. 18:00 – 20:00 (auk helgarferðar í Ölver sumarbúðir)
Sr. Guðni Már Harðarson heldur utan um námsskeiðið þetta árið ásamt góðum hópi fólks. Katrínu Elísu Bernhöft, Nínu Dóru Pétursdóttur, Þuríði Gestsdóttur og Gunnari Böðvarssyni.
Á Alfa-námskeiðinu sem hefur verið haldið á ári hverju frá stofnun Lindasóknar verður stuðst við myndbönd til kennslu í bland við lifandi fyrirlestra. Alfa styðst við bók Nicky Gumbel; Spurningar lífsins (e. Questions of Life).
Umgjörð námskeiðsins er afslöppuð og þægileg og ekki eru lagðar kröfur á þátttakendur um viðhorf, skoðanir eða afstöðu. Upplifun hvers og eins af námskeiðinu er ávallt mjög persónuleg. Hver og einn dregur sinn lærdóm.
Margir hafa hlotið blessun af því að sækja Alfa-námskeið oftar en einu sinni enda trúarglíman og spurningar lífsins sístætt verkefni.
Við í Lindakirkju bjóðum þig sérstaklega velkomin á kynningarkvöldið þar sem boðið verður uppá ljúffenga máltíð, kynningar fyrirlestur og spurningar.
Kostnaður við kynningarkvöldið er enginn en fyrir hin kvöldin sjö greiða þátttakendur 2.000 krónur fyrir matinn og svo kostar ferðin í Ölver 12.000 krónur með öllu inniföldu.
Ef fólk á í vandræðum með að greiða fyrir námskeiðið biðjum við um að senda okkur línu á gudni@lindakirkja.is svo hægt sé að koma á móts við það. Enginn á að þurfa hætta við þátttöku í Alfa á fjárhagslegum forsendum.
Skráning er HÉR  eða í síma 544 4477