Skráning er hafin á hið sívinsæla hjóna- og paranámskeið.
Mánudaginn 16. janúar 2023 hefst sjö vikna hjóna- og paranámskeið í Lindakirkju.
Hjónanámskeiðin í Lindakirkju hafa notið mikilla vinsælda og skorað hátt í könnun þátttakenda sem gerð er í lok hvers námskeiðs.
Hjónanámskeiðið hefst á ljúffengum kvöldverði kl. 18.00 og lýkur stundvíslega kl. 21:00.
Eftir kvöldverðinn er horft á fræðsluþátt. Að honum loknum vinna pörin saman, í einrúmi. Þau þurfa ekki að deila skoðunum sínum með öðrum hjónum.
Uppbygging námskeiðsins miðar að því að hjálpa pörum að setja fókus á sambandið og tengslamyndun. Þættirnir sjö byggja þannig á þáttum sem rannsóknir sýna að nauðsynlegt sé að hlúa að. Farið er í mikilvægi þess að byggja góðan grunn, listina að tjá sig og hvernig við leysum úr ágreiningi. Fyrirgefningin og máttur hennar er skoðaður. Fjallað er um foreldra og tengdaforeldra og tengslin við þau í fortíð og nútíð. En einnig eru mikilvægir lestrar um kynlíf sem og gildi þess að sýna ást sína í verki.
Kostnaður er aðeins kr. 5000- á par/hjón hvert kvöld, eða kr. 35.000- fyrir allt námskeiðið. Innifalið: kvöldverður, vinnubók og fræðsla.
Nánari upplýsingar og skráning á Hjónanámskeið – Lindakirkja, lindakirkja@lindakirkja.is eða í síma 544 4477.