Máttugur miðvikudagur: lofgjörð og bænastund á miðvikudagskvöldum. kl. 20 í safnaðarsal Lindakirkju.
Þetta eru hugljúfar og notalegar stundir þar sem sungin eru lofgjörðarlög, flutt hugvekja og/eða vitnisburður og einnig er boðið upp á fyrirbæn.
Þann 4. mars mun Nína Dóra Pétursdóttir stjórna stundinni, sr. Dís Gylfadóttir flytur hugvekju og tónlistarhópurinn Sálmari leiðir lofgjörð.
Allir hjartanlega velkomnir.