Föstudagur 21. júní kl. 20:30
Söngkonurnar Gógó og Lísa koma saman í Lindakirkju og flytja notalega tónlist við undirleik Hlyns Þórs Agnarssonar píanóleikara.
Á efnisskrá verða ballöður, íslenskar perlur í bland við frumsamið efni.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og aðgangseyrir er 3000 kr.
Athugið að enginn posi er á staðnum.