Verið velkomin í sunnudagaskólann kl. 11:00 á sunnudaginn næstkomandi. Þar verður aldeilis líf og fjör.
Kvöldguðsþjónusta verður á sínum stað kl. 20:00 þar sem kór Lindakirkju mun leiða söng undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar fyrir altari.
Kaffi og samfélag eftir á. Það eru allir hjartanlega velkomnir.