Mánudaginn 14. janúar 2019 hefst sjö vikna hjóna- og paranámskeið í Lindakirkju.
Þetta er sjötta árið í röð sem Lindakirkja fer af stað með námskeiðið sem notið hefur vinsælda og skorar hátt í könnun þátttakenda sem gerð er í lok námskeiðs. Hjónanámskeiðið hefst á ljúffengum kvöldverði kl. 18.00 og lýkur stundvíslega kl. 21:00.
Eftir kvöldverðinn er horft á fyrirlestur. Að honum loknum vinna pörin saman, í einrúmi. Þau þurfa ekki að deila skoðunum sínum með öðrum hjónum.
Uppbygging námskeiðsins miðar að því að hjálpa pörum að setja fókus á sambandið og tengslamyndun. Fyrirlestrarnir sjö byggja þannig á þáttum sem rannsóknir sýna að nauðsynlegt sé að hlúa að. Farið er í mikilvægi þess að byggja góðan grunn, listina að tjá sig og hvernig við leysum úr ágreiningi. Fyrirgefningin og máttur hennar er skoðaður. Fjallað er um foreldra og tengdaforeldra og tengslin við þau í fortíð og nútíð. En einnig eru mikilvægir lestrar um kynlíf sem og gildi þess að sýna ást sína í verki.
Kostnaður er aðeins kr. 3000- á par/hjón hvert kvöld, eða kr. 21.000- fyrir allt námskeiðið. Innifalið: kvöldverður, vinnubók og fræðsla.
Nánari upplýsingar og skráning er hjá sr. Dís Gylfadóttur, dis@lindakirkja.is eða í síma 544 4477.