Föstuguðsþjónusta Eldriborgararáðs verður haldin í Lindakirkju sunnudaginn 11. mars kl. 20:00.
Séra Dís Gylfadóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Þóreyju Dögg Jónsdóttur djákna.
Kór Lindakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Óskars Einarssonar.
Eftir guðsþjónustuna bjóða Eldriborgararáð og Lindasöfnuður kirkjugestum upp á kvöldhressingu.
Verið innilega velkomin og takið með ykkur gesti.
Guðsþjónustan er samstarfsverkefni Eldriborgararáðs og Lindakirkju.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11.