Í vetur verður boðið reglulega uppá pabbamorgna frá kl. 9:30 -12:00 á laugardagsmorgnum
en umsjónarmaður þeirra er Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur.
Hugmyndin með pabbamorgnunum er að gefa feðrum tækifæri til að koma saman með börnin sín og gera eitthvað uppbyggilegt með börnunum og spjalla um uppeldi, eða daginn og veginn við aðra pabba meðan börnin leika sér.
Dagskrá haustannar er eftirfarandi:
Hvenær |
Hvað |
8. október |
Gerum kókoskúlur með börnunum |
22. október |
Ratleikur |
5. nóvember |
Pabbar læra að gera besta eftirrétt í heimi með krökkunum |
19. nóvember |
Undirbúningur fyrir jólin, jólaföndur og sögur. |
Heitt er á könnunni og boðið uppá brauðmeti og ávaxtasafa fyrir 150krónur