Skilmálar vegna þátttöku í viðburðum á vegum Lindakirkju.
- Í febrúar 2002 var Lindasókn stofnuð og varð að prestakalli 1. júlí sama ár. Mörk Lindasóknar og Lindaprestakalls afmarkast í norðri, austri og suðri af bæjarmörkum Kópavogs, en til vesturs af Reykjanesbraut. Á viðburðum, námskeiðum er jafnan lögð áhersla á kristna trú og kristin gildi í sambland við leik og aðra uppfræðslu. Kristileg fræðsla, bænir, söngvar, hugvekjur, helgihald og lestur í Biblíunni eru þannig eðlilegur hluti dagskrár viðburða á vegum Lindakirkju.
- Hér á eftir fara almennir skilmálar sem gilda um þátttöku í öllu starfi á vegum Lindakirkju, þ.á m. þátttöku barna og unglinga undir 18 ára aldri. Með skráningu í viðburð á vegum Lindakirkju samþykkir þátttakandi og/eða foreldri eða forráðamaður þátttakanda að hlíta ákvæðum skilmálanna.
- Skilmálar þessir ná til þátttöku á námskeiðum, þ.m.t. leikjanámskeiðum, og þátttöku í annarri skipulegri starfsemi, samverum eða viðburðum á vegum Lindakirkju. Í eftirfarandi ákvæðum er orðið viðburður notað um allt framangreint hvort heldur um er að ræða þátttöku á viðburði, leikjanámskeið eða aðra skipulagða starfsemi á vegum Lindakirkju.
- Til viðbótar almennum skilmálum þessum gilda um starfsemi Lindakirkju ýmsar sérreglur einstakra starfsstöðva og viðburða sem þátttakendum, foreldrum eða forráðamönnum ber að kynna sér og fara eftir. Sérreglur og leiðbeiningar eru aðgengilegar og kynntar á heimasíðu Lindakirkju.
- Þátttökugjald á viðburði Lindakirkju skal að jafnaði greiða við skráningu. Eftirfarandi eru samþykktar greiðsluleiðir:
- Greiðsla með debet eða kreditkortum eða millifærslu á bankareikning. Ef um millifærslu er að ræða skal senda kvittun eða staðfestingu á greiðslu á netfangið lindakirkja@lindakirkja.is og setja skráningarnúmer í skýringu.
- Lindakirkja býður ekki upp á greiðsluskiptingu með greiðsluseðlum í netbanka.
- Komi til afbókunar skráningar getur greiðandi fengið allt að 85% gjaldsins endurgreitt, þó aldrei undir 4.000 kr. að því tilskildu að afbókun eigi sér stað a.m.k. 7 dögum fyrir viðburð. Sé afbókað með minni en 7 daga fyrirvara er ekki endurgreitt. Fullt gjald er aldrei endurgreitt nema Lindakirkja felli viðburð niður. Ákvæði þetta skerðir þó ekki rétt til þess að falla frá netkaupum innan 14 daga í samræmi við og með takmörkunum ákvæða laga nr. 16/2016 um Neytendakaup, enda hafi viðburður ekki hafist.
- Skráning á viðburði Lindakirkju er persónubundin. Framsal og/eða endursala er óheimil. Nafnabreyting á skráningu getur þó átt sér stað, allt að 24 tímum fyrir brottför gegn greiðslu breytingargjalds samkvæmt gjaldskrá. Lindakirkja áskilur sér þó rétt til þess að hafna beiðni um nafnabreytingu ef biðlisti er á viðburð. Jafnframt er heimilt að breyta eða færa til skráningu milli viðburða gegn greiðslu breytingargjalds.
- Hafi þátttakandi ofnæmi, óþol eða veikindi/sjúkdóma skal upplýsa um slíkt í skráningarformi eða eftir atvikum tilkynna það Lindakirkju skriflega minnst 7 dögum fyrir viðburðinn. Þeim börnum sem eiga við einhvers konar veikindi að stríða skal fylgja læknisvottorð þar sem fram komi upplýsingar um veikindin og skýr fyrirmæli læknis um meðferð, lyfjagjöf o.s.frv. Það sama á við ef þátttakandi þarf að fá eða taka lyf meðan á viðburði stendur. Þá þarf lyfið að fylgja þátttakanda og afhendast starfsmanni Lindakirkju við brottför ásamt skriflegum leiðbeinum um notkun þeirra. Rétt er að benda á að ef Lindakirkja fær ekki nauðsynlegar upplýsingar með skýrum hætti um ofnæmi, óþol, veikindi, sjúkdóma eða lyfjanotkun barns, telst það til vanrækslu af hálfu foreldra/forráðamanna sem Lindakirkja ber að tilkynna til þar til bærra yfirvalda.
- Kjósi þátttakandi, foreldri eða forráðamaður þátttakanda að koma sér sjálfum eða barni sínu beint á viðburð eða beint úr viðburði án þess að nýta sér skipulagðar ferðir á vegum Lindakirkju, s.s. rútuferðir, skal hafa samráð um fyrirkomulag slíks við skrifstofu og/eða forstöðumanneskju viðkomandi viðburðar. Fylgja skal leiðbeiningum og viðmiðum sem settar eru s.s. um tímasetningar.
- Kjósi þátttakandi, foreldri eða forráðamaður þátttakanda að yfirgefa viðburð, hætta þátttöku, eða sækja barn sitt úr viðburði áður en honum líkur, skal slíkt gert í fullu samráði við forstöðumanneskju viðburðar. Tryggja þarf að slíkt valdi ekki öðrum þátttakendum óþarfa truflun. Afsláttur og/eða endurgreiðsla er ekki veitt þótt viðburður sé ekki að fullu nýttur.
- Óskilamunum er safnað saman í Lindakirkju. Lindakirkja áskilur sér rétt til að ráðstafa óskilamunum, fötum og öðrum munum sem skildir eru eftir í á viðburðum.
- Meðferð áfengis, tóbaks, rafretta og vímuefna er bönnuð á öllum viðburðum Lindakirkju. Brot gegn þessu ákvæði eru alvarleg og geta leitt til fyrirvaralausrar brottvísunar af starfssvæðum og viðburðum félagsins án rétts til endurgreiðslu.
- Á viðburðum á vegum Lindakirkju er með öllu óheimilt er að taka með eða bera á sér vopn, hnífa eða önnur tæki eða efni sem talist geta til vopna eða valdið geta tjóni á fólki eða munum. Brot gegn þessu ákvæði eru alvarleg og geta leitt til fyrirvaralausrar brottvísunar af starfssvæðum og viðburðum Lindakirkju án rétts til endurgreiðslu.
- Verði þátttakandi valdur að tjóni hvort heldur er gagnvart Lindakirkju, starfsmönnum eða öðrum þátttakendum kann hann að vera skaðabótaskyldur.
- Lindsakirkja áskilur sér rétt til að nota myndir sem teknar eru á viðburðum þess, þ. á m. af þátttakendum á viðburðum Lindakirkju, til birtinga á heimasíðu og í öðru kynningarstarfi Lindakirkju.
- Lindakirkja áskilur sér rétt til að vísa þátttakanda úr viðburði, ef hann sýnir af sér hegðun sem skemmir fyrir öðrum, setur dagskrá úr skorðum eða ógnar öðrum þátttakendum eða starfsfólki. Er slík ákvörðun tekin af forstöðumanneskju viðburðar. Komi til þess að þátttakanda sé vísað úr viðburði á grundvelli þessa ákvæðis er þátttökugjald ekki endurgreitt.
- Lindakirkja áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum þessum með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara, enda séu nýir skilmálar kynntir og aðgengilegir á vefsíðu Lindakirkju.
- Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Skilmálar síðast uppfærðir 12. apríl 2019